Náttúrugripasafnið í Neskaupstað var stofnað 1965. Upphafsmaður að stofnun safnsins var Bjarni Þórðarson þáverandi bæjarstjóri. Hjörleifur Guttormsson líffræðingur var fyrsti forstöðumaður safnsins og vann að uppsetningu þess. Fyrsta sýning var opnuð í Gagnfræðaskólanum í Neskaupstað sumarið 1970.
Sýning safnsins var síðan opnuð í leiguhúsnæði að Mýrargötu 37 sumarið 1971. Systkinin Jóhann og Sigrún Sigmundarbörn gáfu safninu íbúðarhús sitt að Miðstræti 1 árið 1987 en áður hafði Jóhann gefið safninu steinasafn sitt sem hefur að geyma m.a. mikið af slípuðu efni. Safnið flutti í eigið húsnæði að Miðstræti 1 vorið 1989. Náttúrugripasafnið hefur unnið að umhverfisrannsóknum m.a. á hálendinu NA Vatnajökuls vegna virkjanaframkvæmda og annast nú eftirlit og ráðgjöf vegna mannvirkjagerðar fyrir Náttúruvernd ríkisins. Í mars 2002 skrifaði Fjarðabyggð undir samning við Náttúrustofu Austurlands um rekstur safnsins. Sá samningur var endurnýjaður og gilti til ársins 2006. Undanfarin ár hefur Náttúrustofa Austurlands sé um faglega ráðgjöf til Safnastofnunar Fjarðabyggðar um Náttúrugripasafnið, en Safnastofnun sér um daglegan rekstur þess.
Safnið hefur að geyma flesta íslenska fugla auk fjölda flækinga ásamt ágætu fiskasafni með ýmsum sjaldséðum fiskum. Einnig eru í safninu ýmsir gripir af sjávarbotni, þar á meðal mjög gott safn skeldýra. Viltu íslensku spendýrin eiga sína fulltrúa á safninu og þar er einnig mjög gott steinasafn. Þá varðveitir safnið austfirskt plöntuvísindasafn og skordýrasafn.
Náttúrugripasafnið í Neskaupstað, Egilsbraut 2, 740 Neskaupstað. Sími: 477 1454 og 470 9063. Netfang: sofn@fjardabyggd.is. Sumaropnun, opið er alla daga frá kl 13:00 - 17:00 frá 1. júní til 31. ágúst. Eða eftir samkomulagi við forstöðumann á öðrum árstímum. Sími: 477 1446 - 470 9063.
nánar -> |